Fotbolti.net
20.02.20 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Messi sérlega spenntur fyrir Napoli

Lionel Messi.

Lionel Messi.

Canon

Mynd: Getty Images

Barcelona heimsækir Napoli í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Lionel Messi, leikmaður Barcelona, er sérlega spenntur fyrir því að heimsækja San Paolo leikvanginn.

Messi er Argentínumaður eins og allir vita og völlurinn er fyrrum heimavöllur goðsagnarinnar Diego Maradona.
„Mig hefur lengi langað að spila á þessum velli en ekki fengið tækifæri til þess fyrr en nú," segir Messi.

„Ég er mjög spenntur að upplifa þetta þó aðstæður séu öðruvísi en þær voru þegar Maradona spilaði þarna. Leikvangurinn hefur verið endurnýjaður og það er annað fólk."

„Fólkið þarna hefur mikla ástríðu fyrir fótbolta, það er brjálað í fótbolta. Ég er mjög spenntur fyrir því að heimsækja Napoli."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.