Ari Freyr Skúlason var mættur aftur í byrjunarlið Oostende í dag sem spilaði við Mouscron í belgísku úrvalsdeildinni.
Ari Freyr Skúlason var mættur aftur í byrjunarlið Oostende í dag sem spilaði við Mouscron í belgísku úrvalsdeildinni.
Ari byrjaði á bekknum í leiknum á undan gegn Gent en hann tapaðist með einu marki gegn engu.
Landsliðsmaðurinn spilaði 73 mínútur í leiknum í dag en Oostende hafði betur með einu marki gegn engu.
Dramatískt sigurmark var á boðstólnum í þessum leik en Makhtar Gueye tryggði Oostende sigur þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.
Sigurinn gerir mikið fyrir Oostende sem er nú í fjórða sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir Antwerp í öðru sæti.
Athugasemdir