Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
   mán 20. apríl 2026 09:30
Kári Snorrason
Kaplakrikavöllur ekki tilbúinn - FH og Valur víxla heimaleikjum
Svona leit Kaplakriki út fyrir sléttu ári síðan.
Svona leit Kaplakriki út fyrir sléttu ári síðan.
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vegna slæmra vallaraðstæðna á Kaplakrikavelli hefur leikjum FH og Vals verið víxlað.

Leikurinn, sem átti upphaflega að fara fram miðvikudaginn 22. apríl, verður þess í stað leikinn fimmtudaginn 23. apríl klukkan 19.15 á N1-vellinum á Hlíðarenda.

FH byrjar því á þremur útileikjum en Valur byrjar Bestu deildina á þremur heimaleikjum. Valur er með þrjú stig en FH eitt stig.

Síðari viðureign liðanna fer fram sunnudaginn 12. júlí og verður þá leikið á Kaplakrikavelli í stað Hlíðarenda.

Besta deildin 3. umferð
miðvikudagur 22. apríl
17:30 Keflavík-Breiðablik (HS Orku völlurinn)
18:00 ÍA-KA (ELKEM völlurinn)

fimmtudagur 23. apríl
13:00 ÍBV-KR (Hásteinsvöllur)
17:00 Þór-Fram (Þórsvöllur)
19:15 Valur-FH (N1-völlurinn Hlíðarenda)
19:15 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
Besta karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Víkingur R. 7 6 1 0 21 - 4 +17 19
2.    KR 7 6 1 0 27 - 13 +14 19
3.    Fram 7 4 2 1 20 - 13 +7 14
4.    Breiðablik 7 3 3 1 13 - 8 +5 12
5.    Valur 7 4 0 3 16 - 14 +2 12
6.    KA 7 3 1 3 9 - 9 0 10
7.    Keflavík 7 2 2 3 10 - 12 -2 8
8.    ÍA 7 2 2 3 9 - 14 -5 8
9.    Stjarnan 7 2 1 4 14 - 17 -3 7
10.    Þór 7 2 0 5 6 - 19 -13 6
11.    FH 7 0 2 5 12 - 20 -8 2
12.    ÍBV 7 0 1 6 6 - 20 -14 1
Slapp
banner
banner