Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. maí 2021 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Arsenal krækti í tíu ára gamlan Leo Messo
Mynd: Getty Images
Færsla frá Chris Wheatley, fréttamanni sem sérhæfir sig í umfjöllun um Arsenal, hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum þar sem tíu ára strákur er byrjaður að æfa með félaginu.

Það væri ekki merkilegt nema fyrir þær sakir að strákurinn heitir Leo Messo, aðeins einum staf frá einum af bestu knattspyrnumönnum sögunnar Lionel 'Leo' Messi.

Messo er tíu ára gamall og er fæddur í Keníu en flutti til Englands ungur með fjölskyldu sinni. Hann spilaði áður með U10 ára liði West Ham en er núna kominn yfir til Arsenal.


Athugasemdir
banner
banner