20.07.04 - 07:22
Magnús Már Einarsson
Pasanen til Werder Bremen (Staðfest)




Þýsku meistararnir í Werder Bremen hafa keypt finnska varnarmanninn Petri Pasanen frá Ajax en hjá Werder hittir hann landa sinn Pekka Lagerblom. Pasanen sem að er 23 ára hefur gert fjögurra ára samning við Werder en hann var í láni hjá Portsmouth seinni hlutann á síðustu leiktíð. Werder Bremen er að styrkja lið sitt fyrir komandi átök og í gær fékk liðið danska miðjumanninn Daniel Jensen eins og við sögðum frá en liðið seldi varnarmanninn Manuel Friedrich til nýliða Mainz í Bundesligunni og sögðu menn hjá Werder að peningar sem að fengust fyrir Friedrich hafi verið notaðir til að kaupa Pasanen og Jensen.
