20.08.04 - 11:18
Hafliði Breiðfjörð
Woodgate til Real Madrid (Staðfest)

Jonathan Woodgate miðvörður enska landsliðsins gekk í morgun í raðir Real Madrid á Spáni frá Newcastle eftir að hafa undirgengist læknisskoðun. Kaupverðið er 13,4 milljónir punda en Sir Bobby Robson stjóri Newcastle sagði í gær að tilboðið væri of gott til að hafna því.
Margir höfðu haft efasemdir um að Woodgate kæmist í gegnum læknisskoðunina en hann hefur verið mikið meiddur hjá Newcastle nú síðast vegna meiðsla á læri.
Þrátt fyrir það samþykkti Real niðurstöður læknisskoðunarinnar og Woodgate skrifaði undir samning sem gefur honum 80 þúsund pund í vikulaun.
Woodgate er þriðji Englendingurinn hjá Real en fyrir voru David Beckham og Michael Owen.