20.08.04 - 12:03
Magnús Már Einarsson
Doherty til Norwich (Staðfest)




Norwich hefur fengið Gary Doherty frá Tottenham. Hinn 24 ára gamli Doherty hefur skrifað undir þriggja ára samning við Norwich og er í leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Manchester United um helgina. Doherty sem að er varnarmaður var á bekknum hjá Tottenham þegar að liðið gerði jafntefli við Liverpool um síðustu helgi.
"Nú verð ég að berjast fyrir sæti mínu og hjálpa liðinu að halda sér í Úrvalsdeildinni því að ég vil ekki spila í Championship (ensku fyrstu deildinni)" Sagði Doherty.
Á myndinni má sjá Doherty með búning Norwich en hann hefur greinilega ekki enn fengið skaffað númer.
Á myndinni má sjá Doherty með búning Norwich en hann hefur greinilega ekki enn fengið skaffað númer.
