Fotbolti.net
20.08.26 - 09:18
Elvar Geir Magnússon

Tottenham í viðræðum við Man City um tvo leikmenn

Spursarar hafa lengi haft augastað á Savinho.

Spursarar hafa lengi haft augastað á Savinho.

Canon

Mynd: EPA

Tottenham er í viðræðum við Manchester City um möguleg kaup á tveimur leikmönnum þeirra ljósbláu, brasilíska kantmanninum Savinho og egypska framherjanum Omar Marmoush.

Heimildir breska ríkisútvarpsins herma að viðræður séu að þróast áfram en samkomulag sé þó ekki í höfn.
Tottenham vill þrjá nýja sóknarmenn fyrir gluggalok
TENGT EFNI

Tottenham vill þrjá nýja sóknarmenn fyrir gluggalok

Tottenham hefur lengi sýnt hinum 22 ára Savinho áhuga. Hann byrjaði aðeins sjö úrvalsdeildarleiki á síðasta tímabili.

Marmoush kom við sögu í 36 leikjum og skoraði átta mörk í öllum keppnum á síðasta tímabili.

Verðmat City á leikmönnunum tveimur er ekki ljóst en félagið vill þó fá inn talsverðan gróða á þeim báðum. Savinho var keyptur á 30 milljónir punda frá Troyes 2024 og Marmoush á 59 milljónir frá Frankfurt 2025.
Omar Marmoush.

Omar Marmoush.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.