20.08.26 - 09:30
Elvar Geir Magnússon
Kjartan: Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn

Kjartan í leik með Brann á dögunum.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Kjartan Már ræddi við Vísi.

Fyrr í þessum mánuði gekk Kjartan Már Kjartansson til liðs við norska Íslendingaliðið Brann frá skoska félaginu Aberdeen.
Stephen Robinson, stjóri Aberdeen, tjáði sig um söluna á Kjartani og sagði íslenska miðjumanninn hafa gefið það skýrt til kynna að hann hafi ekki viljað vera hjá félaginu.
„Ég vil hungraða leikmenn, leikmenn sem hlaupa í gegnum veggi fyrir Aberdeen. Þegar einhver gefur skýrt til kynna að hann vilji ekki vera hérna er eina í stöðunni að finna bestu lausnina," sagði Robinson á fréttamannafundi.
Kjartan hefur nú svarað þessum ummælum í viðtali við Vísi. Hann segist ekki hafa viljað fara þegar Robinson tók fyrst við liðinu í mars en svo breyttust aðstæður þar sem honum fannst hann ekki hljóta sanngjörn tækifæri.

TENGT EFNI
Stjóri Aberdeen um Kjartan: Gaf það skýrt til kynna að hann vildi ekki vera hérna
„Ég reyndi mitt besta til þess að vinna mér inn mínútur inn á vellinum undir hans stjórn en síðan sá ég ekki fram á að mínútunum myndi fjölga. Í þeirri stöðu lét ég hann svo vita af því í sumar að ég vildi leita annað, finna nýja áskorun á mínum ferli," segir Kjartan.
„Hann er mjög ákveðinn þjálfari. Ég ætla ekki að segja að það sé erfitt að eiga við hann en það var allavegana ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn og hans fótboltahugmyndum. Mér fannst þetta ekki vera sanngjarnt ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Mér fannst ég vera standa mig vel á æfingum, lagði mig alltaf allan fram."
Kjartan, sem er miðjumaður, er fjórði Íslendingurinn í leikmannahópnum hjá Brann en fyrir voru þeir Eggert Aron Guðmundsson, Kristall Máni Ingason og Sævar Atli Magnússon.

Heimild: Vísir