Fotbolti.net
17.08.26 - 10:39
Elvar Geir Magnússon

Er Enzo tvöfalt verðmætari en Rodri?

Manchester City vill fá Enzo Fernandez.

Manchester City vill fá Enzo Fernandez.

Canon

Mynd: EPA

Manchester City er að selja Rodri til Barcelona fyrir 65 milljónir punda en félagið gæti nú reynt að kaupa Enzo Fernandez sem Chelsea verðmetur á 120 milljónir punda.

Af hverju er Argentínumaðurinn með miklu hærri verðmiða? Sérfræðingar Sky Sports köfuðu ofan í málið.
Eftir tvö meiðslahrjáð tímabil með Manchester City sýndi Rodri á HM að hann er enn fær um a sýna sínar bestu hliðar. Og samkvæmt gögnum frá Gradient Sports þá stóð Rodri stóð sig betur en Enzo í fimm af sex lykilþáttum á miðjunni; þar á meðal sendingum, tæklingum og að halda í boltann.

Ungdómurinn trompar reynsluna
Það er þó aldurinn sem hefur auðvitað mikið að segja. Rodri er orðinn 30 ára en Enzo er 25 ára og ætti að vera að sigla inn í hátindinn á ferli sínum.

Verðmæti miðjumanna á Transfermarkt sýnir að það nær hámarki að meðaltali við 27 ára aldur og lækkar svo þegar leikmenn nálgast þrítugt. Verðmæti Rodri náði hámarki þegar hann var 28 ára og vann vann Ballon D'Or gullboltann. Það hefur síðan lækkað verulega, úr 111 milljónum punda í 47 milljónir. Verðmæti Enzo hefur hinsvegar aldrei verið hærra en nú; 85,5 milljónir punda.

Lengri samningar, meira verðmæti?
Samningslengd er annar mikilvægur þáttur í verðmati leikmanna. Rodri var kominn inn á síðasta ár samnings síns við City sem þýðir að félagið átti á hættu að missa hann fyrir ekki neitt næsta sumar, en Enzo á sex ár eftir af samningi sínum við Chelsea sem setur félag hans í mun sterkari samningsstöðu.

Þegar leikmenn í ensku úrvalsdeildinni eru flokkaðir eftir samningslengd sést greinilega að því lengri sem samningurinn er, því hærra er meðalverðið.

Aldur og samningsstaða eru því tveir lykilþættir þegar kemur að verðmæti á leikmönnum. Aðrir þættir sem hafa áhrif eru skammtíma- og langtímaform leikmanna, styrkur félagsins, styrkleikaröðun Opta tölfræðifyrirtækisins og spilaðar mínútur.

Heimild: Sky Sports

Rodri var valinn bestur á HM.

Rodri var valinn bestur á HM.

Canon

Mynd: EPA

Þættir sem hafa áhrif á verðmat leikmanna.

Þættir sem hafa áhrif á verðmat leikmanna.

Canon

Mynd: Sky Sports

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.