Fotbolti.net
20.08.26 - 09:00
Ívan Guðjón Baldursson

Crystal Palace hafnaði tilboði frá Tyrklandsmeisturum

Crystal Palace hafnaði tilboði frá Tyrklandsmeisturum
Canon

Mynd: EPA

Fabrizio Romano greinir frá því að Crystal Palace hafi hafnað kauptilboði frá Galatasaray í kantmanninn Ismaïla Sarr.
Spáin fyrir enska - 13. sæti
TENGT EFNI

Spáin fyrir enska - 13. sæti

Sarr er 28 ára gamall og með þrjú ár eftir af samningi. Hann skoraði 21 mark í 45 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð og er álitinn lykilmaður innan félagsins.

Ekki er greint frá upphæðinni sem Galatasaray bauð í leikmanninn, en talið er að Palace sé ekki tilbúið að selja Sarr fyrir minna heldur en 50 milljónir punda.

Einhverjir fjölmiðlar greindu frá því fyrr í sumar að Palace hafi hafnað 20 milljón punda boði frá Fenerbahce í kantmanninn.

Sarr hefur í heildina komið með beinum hætti að 43 mörkum í 92 leikjum með Palace, auk þess að hafa skorað 23 mörk í 88 landsleikjum fyrir Senegal.
Crystal Palace hafnaði tilboði frá Tyrklandsmeisturum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.