20.08.26 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Ákveðinn hópur sem vildi móðga Julián Alvarez"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mikið hefur verið rætt um argentínska framherjann Julián Alvarez sem Barcelona og Arsenal vildu kaupa í sumar, en Atlético Madrid hefur engan áhuga á að selja stjörnuleikmann sinn.

TENGT EFNI
Spánn: Glæsimörk er Atlético sigraði nýliðana
Alvarez hefur verið ómissandi lykilmaður í byrjunarliði Atlético fyrstu tvö ár sin hjá félaginu, með 66 mörk og stoðsendingar í 106 leikjum í öllum keppnum.
Stuðningsmenn elska vinnusemina hans en stór hluti þeirra er gríðarlega ósáttur með hegðun framherjans í sumarglugganum þar sem hann talaði opinskátt um að vilja skipta yfir til Barcelona.
Ummæli Alvarez vöktu upp gömul sár hjá stuðningsmönnum Atlético eftir að Antoine Griezmann skipti yfir til Barcelona á sínum tíma. Sem betur fer fyrir Atlético lukkuðust þau félagaskipti illa og snéri Griezmann aftur til Madrídar tveimur árum síðar.
„Ég veit ekki hvort Julián Alvarez muni biðjast afsökunar, en ég er viss um að hann verður búinn að vinna ást stuðningsmanna til baka eftir tvo eða þrjá leiki á nýju tímabili. Við ætluðum aldrei að selja Julián og við létum Barcelona vita af því um leið og þeir höfðu samband," segir Enrique Cerezo, forseti Atlético Madrid.
Hluti stuðningsmanna Atlético söng níðsöngva um Julián Alvarez í 2-0 sigri gegn Málaga í fyrstu umferð á nýju deildartímabili, en Alvarez var ekki með í hóp.
„Það voru einhverjir söngvar úr stúkunni en þar var mjög takmarkaður fjöldi fólks á ferð. Þetta er ákveðinn hópur sem vildi móðga Julián Alvarez. Ég vil ekki tjá mig frekar um það, ég sýni okkar fólki mikla virðingu," sagði Diego Simeone, þjálfari Atlético, eftir sigurinn gegn Málaga.

Julián Alvarez ekki í hóp fyrir opnunarleikinn
?????????? Julián Álvarez, posing with new Atlético Madrid kit for season 2026/27. pic.twitter.com/gQFm3gyH2A
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 19, 2026

Mynd: EPA

Mynd: EPA