20.08.26 - 09:09
Elvar Geir Magnússon
Óskar Örn tók fram skóna með Haukum og lék sinn fyrsta leik síðan 2024

Óskar Örn Hauksson á hliðarlínunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar varð þrívegis Íslandsmeistari með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Örn Hauksson á hliðarlínunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Örn Hauksson, einn allra besti leikmaður í sögu efstu deildar, tók skóna fram að nýju í gær og lék sinn fyrsta keppnisleik síðan hann spilaði fyrir Víking 2024.
Óskar er 41 árs og er í þjálfarateymi Hauka þar sem hann er styrktarþjálfari og aðstoðarmaður Guðjóns Péturs Lýðssonar þjálfara.
Samkvæmt upplýsingum Fótbolta.net hefur Óskar verið duglegur við að taka þátt í æfingum Hauka og hann kom inn af bekknum á 70. mínútu þegar Haukur unnu Kormák/Hvöt á Blönduósi í gær.
Haukar eru langefstir í 2. deild og komnir með annan fótinn og rúmlega það upp í Lengjudeildina, ellefu stigum frá þriðja sætinu.

TENGT EFNI
2. deild: Haukar tveimur stigum frá Lengjudeildinni
Óskar lék fimmtán tímabil með KR á ferli sínum og er bæði leikja- og markahæsti leikmaður félagsins í efstu deild. Hann á leikjametið í deildakeppninni á Íslandi í heild sinni en þetta var hans 448 leikur samkvæmt samantekt Víðis Sigurðssonar í Íslensk knattspyrna. Númer tvö á þeim lista er Gunnleifur Gunnleifsson með 439 leiki.
Haukar eru sjötta félagið á Íslandi sem Óskar leikur fyrir. Hann er uppalinn hjá Njarðvík en hefur einnig spilað fyrir Grindavík og Stjörnuna hér á landi auk KR og Víkings.
Þess má geta að önnur goðsögn í íslenskum fótbolta, Pablo Punyed, lék allan leikinn í gær en hann er spilandi aðstoðarþjálfari liðsins.
Haukar eru sjötta félagið á Íslandi sem Óskar leikur fyrir. Hann er uppalinn hjá Njarðvík en hefur einnig spilað fyrir Grindavík og Stjörnuna hér á landi auk KR og Víkings.
Þess má geta að önnur goðsögn í íslenskum fótbolta, Pablo Punyed, lék allan leikinn í gær en hann er spilandi aðstoðarþjálfari liðsins.

Óskar varð þrívegis Íslandsmeistari með KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 18 | +22 | 41 |
| 2 | Selfoss | 18 | +9 | 33 |
| 3 | Kári | 18 | +18 | 30 |
| 4 | Víkingur Ó. | 18 | -4 | 28 |
| 5 | Fjölnir | 18 | +3 | 25 |
| 6 | Kormákur/Hvöt | 18 | +9 | 24 |
| 7 | KFA | 18 | +4 | 23 |
| 8 | Dalvík/Reynir | 18 | -3 | 22 |
| 9 | Magni | 18 | -12 | 22 |
| 10 | Þróttur V. | 18 | -6 | 19 |
| 11 | Hvíti riddarinn | 18 | -16 | 16 |
| 12 | KFG | 18 | -24 | 16 |