Fotbolti.net
20.08.26 - 20:06
Brynjar Ingi Erluson

Sambandsdeildin: Víkingar með bakið upp við vegg

Víkingar eru ekki í góðum málum

Víkingar eru ekki í góðum málum

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. 1 - 3 FK Borac
0-1 Luka Juricic ('21 )
0-2 Milos Jojic ('23 )
1-2 Gylfi Þór Sigurðsson ('75 , víti)
1-3 Luka Juricic ('86 )
Lestu um leikinn
Íslandsmeistarar Víkings eru í erfiðri stöðu eftir 3-1 tap gegn bosníska liðinu Borac í fyrri leik liðanna í umspili Sambandsdeildar Evrópu í Víkinni í kvöld.

Víkingar vonuðust til að endurtaka leikinn frá deildarkeppni Sambandsdeildarinnar fyrir tveimur árum þegar þeir unnu Borac, 2-0, á Kópavogsvelli.

Þrátt fyrir ágæta byrjun Víkinga varð raunin önnur í kvöld. Luka Juricic kom gestunum yfir eftir frábæra skyndisókn á 21. mínútu. Sebastian Herrera fékk boltann vinstra megin og sendi hann fast meðfram grasinu á Juricic sem afgreiddi færið snyrtilega.

Borac tvöfaldaði forystuna aðeins tveimur mínútum síðar. Juricic laumaði boltanum inn fyrir vörn Víkinga á Milos Jojic sem lyfti honum yfir Aron Snæ Friðriksson.

Hættulegasta færi Víkinga í fyrri hálfleik kom á 30. mínútu. Gylfi Þór Sigurðsson tók þá aukaspyrnu rétt fyrir utan teiginn en Mladen Jurkas varði skotið án mikilla vandræða.

Juricic komst í algert dauðafæri undir lok hálfleiksins eftir svipaða sókn og í fyrsta markinu. Boltinn kom fyrir markið frá hægri en Aron Snær varði frábærlega með fótunum.

Víkingar sóttu af krafti í síðari hálfleik og sköpuðu sér nokkur álitleg færi.

Varnarmenn Borac voru oft á mörkunum í teignum og kölluðu Víkingar nokkrum sinnum eftir vítaspyrnu. Hún kom loks þegar um tuttugu mínútur voru eftir eftir að Aron Elís Þrándarson var tekinn niður í kjölfar hornspyrnu.

Gylfi Þór steig á punktinn og skoraði af öryggi með föstu skoti niðri í hægra hornið.

Borac náði aftur tveggja marka forystu þegar tæpar fimm mínútur voru eftir. Pavle Dajic átti skot fyrir utan teig sem fór í Juricic, breytti um stefnu og þaðan í netið. Skömmu áður hafði Aron Snær varið vel frá Ante Roguljic.

Gylfi Þór var nálægt því að minnka muninn aftur undir lokin þegar hann lét vaða rétt fyrir utan teig en Jurkas og varnarmenn Borac náðu að koma í veg fyrir markið.

Lokatölur urðu því 3-1 og Borac fer með tveggja marka forskot til Bosníu. Víkingar þurfa að eiga stórleik í síðari viðureigninni ætli þeir sér sæti í deildarkeppninni.
Borac-menn fagna

Borac-menn fagna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi skoraði eina mark Víkinga úr vítaspyrnu

Gylfi skoraði eina mark Víkinga úr vítaspyrnu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.