Fotbolti.net
20.08.26 - 20:43
Brynjar Ingi Erluson

Telur mjög líklegt að Minteh fari til Liverpool

Yankuba Minteh

Yankuba Minteh

Canon

Mynd: EPA

Enski blaðamaðurinn Andy Naylor sem starfar hjá Athletic þar sem hann skrifar sérstaklega um Brighton telur miklar líkur á því að Yankuba Minteh fari til Liverpool í glugganum.
Brighton hafnaði 50 milljóna punda tilboði Liverpool
TENGT EFNI

Brighton hafnaði 50 milljóna punda tilboði Liverpool

Athletic og Sky Sports greindu frá því í dag að Brighton hefði hafnað 50 milljóna punda tilboði Liverpool í Minteh.

Minteh er 22 ára gamall og verður frá vegna meiðsla fram í október. Liverpool hefur þó lengi fylgst með honum og er tilbúið að horfa framhjá meiðslunum til að fá hann áður en glugginn lokar.

Liverpool hefur einnig skoðað Ibrahim Mbaye hjá Paris Saint-Germain en eins og staðan er núna virðist Minteh líklegri til að verða fyrir valinu.

Naylor segir Liverpool komið nálægt þeirri upphæð sem Brighton vill fá fyrir Minteh. Það sama eigi við um tilboð Manchester United í Carlos Baleba.

Hann telur því líklegt að báðir leikmenn yfirgefi Brighton áður en glugginn lokar.

Naylor á líka von á því að Baleba fari til Man Utd

Naylor á líka von á því að Baleba fari til Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.