20.09.19 - 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Cagliari skoraði þrjú gegn Genoa

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Cagliari 3 - 1 Genoa
1-0 Giovanni Simeone ('46)
1-1 Cristian Kouame ('83)
2-1 Cristian Zapata ('84, sjálfsmark)
3-1 Joao Pedro ('87)
1-0 Giovanni Simeone ('46)
1-1 Cristian Kouame ('83)
2-1 Cristian Zapata ('84, sjálfsmark)
3-1 Joao Pedro ('87)
Cagliari tók á móti Genoa og var staðan markalaus eftir nokkuð líflegan fyrri hálfleik.
Í síðari hálfleik var aðeins fjórum skotum hleypt í átt að marki en þrjú skotanna höfnuðu í netinu og voru fjögur mörk skoruð.
Giovanni Simeone, sonur Diego þjálfara Atletico, kom Cagliari yfir í upphafi síðari hálfleiks.
Heimamenn lokuðu vörninni vel og gáfu ekki færi á sér en Cristian Kouame náði þó að jafna á 83. mínútu.
Gleði gestanna var skammlíf því Cristian Zapata gerði sjálfsmark með að stanga fyrirgjöf í eigið net mínútu síðar, skömmu áður en Joao Pedro innsiglaði sigurinn úr skyndisókn.
Cagliari er með sex stig eftir fjórar umferðir. Genoa er með fjögur stig.
Cagliari á erfiðan leik á San Paolo á miðvikudagskvöldið á sama tíma og Genoa tekur á móti Bologna.