Fotbolti.net
20.09.19 - 21:31
Ívan Guðjón Baldursson
Jói útherji

Spánn: Markalaust í Pamplona

Robles átti stórleik í Pamplona.

Robles átti stórleik í Pamplona.

Canon

Mynd: Getty Images

<b>Osasuna 0 - 0 Real Betis</b>
Osasuna og Real Betis gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik helgarinnar í efstu deild á Spáni.

Osasuna vann B-deildina í fyrra og hefur farið þokkalega vel af stað í efstu deild. Liðið er taplaust eftir fimm umferðir en er þó aðeins með sjö stig, eftir sigur í fyrstu umferð og fjögur jafntefli í röð síðan þá. Liðið gerði meðal annars 2-2 jafntefli við Barcelona.

Heimamenn voru betri aðilinn í dag og hefðu átt skilið að skora minnst eitt mark, en Joel Robles, fyrrum varamarkvörður Everton, átti stórleik og bjargaði stigi fyrir sína menn.

Betis er með fimm stig eftir fimm umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.