Fotbolti.net
20.09.22 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Jorginho setti sig í samband við Barcelona

Jorginho setti sig í samband við Barcelona
Canon

Mynd: Getty Images

Samningur Jorginho hjá Chelsea rennur út eftir tímabilið en hann er sagður vilja fara til Barcelona.

Spænski miðillinn Marca greinir frá því að Jorginho hafi sjálfur haft samband við Barcelona og tjáð spænska félaginu að hann sé opinn fyrir því að ganga til liðs við félagið á frjálsri sölu næsta sumar.

Barcelona hins vegar hefur ekki áhuga á þessum þrítuga ítalska landsliðsmanni en er þó í leit að miðjumanni til að taka við af Sergio Busquets í framtíðinni.

Jorginho hefur verið lykilmaður á miðjunni hjá Chelsea síðan hann gekk til liðs við félagið frá Napoli árið 2018 en hann hefur leikið 131 leiki fyrir enska félagið.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.