Fotbolti.net
20.10.15 - 17:09
Elvar Geir Magnússon

Guðmundur Atli: Hef aldrei skilið þá sem eru bakverðir

Auglýsing
Guðmundur Atli í Blikabúningnum.

Guðmundur Atli í Blikabúningnum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það var kominn tími til að taka skrefið,\" segir Guðmundur Atli Steinþórsson sem var í dag kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks.

Guðmundur Atli hefur raðað inn mörkum í 1. deildinni síðustu ár með HK en hefur nú fært sig um set í Kópavoginum. Sagan segir að hann hafi hafnað hærri tilboðum, meðal annars frá Þrótti, og skrifað undir hjá Blikum en hann vill ekki tjá sig um það.
„Þetta er frábær klúbbur, frábær umgjörð, frábærir þjálfara og frábær leikmannahópur,\" segir Guðmundur Atli sem vonast til að geta haldið áfram markaskorun sinni með Breiðabliki.

„Mér finnst gaman að skora og er ágætur í því. Ég hef aldrei skilið leikmenn sem nenna að vera bakverðir því það er bara gaman að skora í fótbolta.\"

„Ég var búinn að lofa sjálfum mér og honum (Arnari Grétarssyni þjálfara) að gefa allt í þetta. Fótboltinn verður númer eitt hjá mér og ég mun koma í mínu besta standi næsta sumar.\"

Guðmundur Atli er spenntur fyrir komandi tímum og dreymir um að vinna titla með Breiðabliki. Í liðinu eru margir hæfileikaríkir leikmenn sem ættu að geta „matað hann vel.\"

„Ég sá mjög marga Blikaleiki síðasta sumar og var hálf öfundsjúkur að sjá hvernig þeir spila. Þeir geta haldið boltanum inni á vallarhelmingi andstæðingsins og það verður gaman að geta potað inn nokkrum mörkum í stað þess að þurfa að böðlast fyrir þeim,\" segir Guðmundur Atli en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.