25.07.26 - 17:04
Brynjar Ingi Erluson
Brandt með tilboð frá Ajax og Leeds

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Þýski leikmaðurinn Julian Brandt er með tilboð frá Ajax og Leeds United. Fréttastofa Sky Sports segir frá.
Þessi þrítugi miðjumaður yfirgaf Borussia Dortmund um síðustu mánaðamót þegar samningur hans við félagið rann út.
Hann liggur nú undir feldi og skoðar næsta skref, en samkvæmt Sky eru bæði Ajax og Leeds búin að leggja fram tilboð.
Miðjumaðurinn er talinn hallast að Leeds enda hefur hann lengi dreymt um að spila í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur þó einnig áhuga á að reyna fyrir sér í ítölsku A-deildinni, berist honum spennandi tilboð þaðan á næstunni.
Leeds heldur viðræðum áfram við Jurgen, föður og umboðsmann leikmannsins, en hann heimsótti æfingasvæði félagsins fyrr í þessum mánuði.
Brandt lék í sjö ár með Dortmund eftir að hafa áður verið á mála hjá Bayer Leverkusen. Hann á að baki 48 A-landsleiki fyrir Þýskaland og hefur skorað í þeim þrjú mörk. Þá var hann meðal annars í þýska landsliðshópnum á HM fyrir fjórum árum.