Fotbolti.net
25.07.26 - 10:20
Brynjar Ingi Erluson

Real Madrid í viðræðum um Rodri - Diomande eftirsóttur

Rodri vill ólmur komast til Real Madrid

Rodri vill ólmur komast til Real Madrid

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Besti leikmaður HM er sagður á leið til Real Madrid, Arsenal ætlar að bjóða Atletico Madrid fúlgur fjár og Viktor Gyokeres fyrir Julian Alvarez og stærstu félög heims berjast um Yan Diomande.

Þetta og meira til í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Real Madrid á í viðræðum við Manchester City um spænska miðjumanninn Rodri (30) og er fullvisst um að geta náð samkomulagi við leikmanninn. (Athletic)

Englandsmeistarar Arsenal íhuga að leggja fram tilboð í argentínska framherjann Julian Alvarez (26), leikmann Atletico Madrid. Arsenal er reiðubúið að greiða háa upphæð og senda Viktor Gyokeres (28) í hina áttina. (Cadena Ser)

Roma hefur áhuga á norska vængmanninum Oscar Bobb (23) hjá Fulham þrátt fyrir að aðeins sex mánuðir séu síðan hann kom til félagsins frá Manchester City. (Football Italia)

Paris Saint-Germain hefur ekki enn lagt fram formlegt 102 milljóna punda tilboð í Yan Diomande (19), vængmann RB Leipzig. Það gefur Liverpool, Arsenal, Real Madrid og Manchester City aukna von í baráttunni um Fílabeinsstrendinginn. (Bild)

Bruno Guimaraes (28), miðjumaður Newcastle United, er áfram efstur á óskalista Arsenal en Alex Scott (22) hjá Bournemouth er einnig undir smásjá félagsins. (Telegraph)

Newcastle mun hafna 70 milljóna punda tilboði Arsenal í Guimaraes en leikmaðurinn er sagður mjög spenntur fyrir því að ganga til liðs við Englandsmeistarana. (Times)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, er sagður reiðubúinn að greiða 90 milljónir punda fyrir Guimaraes. (Mundo Deportivo)

Manchester United ætlar ekki að selja portúgalska miðjumanninn Bruno Fernandes (31) þrátt fyrir orðróm um að hann sé á förum frá félaginu. (Teamtalk)

Como mun funda með Chelsea í dag í von um að ganga frá kaupum á enska miðverðinum Trevoh Chalobah (27). Chelsea ætlar ekki að selja hann fyrir minna en 30 milljónir punda. (Sky Italia)

Chelsea hefur lagt fram tilboð í bosníska vængmanninn Kerim Alajbegovic (18), sem leikur með Bayer Leverkusen í Þýskalandi. (Kicker)

Arsenal og Hamburg eiga í viðræðum um portúgalska miðjumanninn Fabio Vieira (26). Hann vill ganga til liðs við þýska félagið eftir að hafa leikið þar á láni á síðasta tímabili. (Florian Plettenberg)

Enska framherjanum Marcus Rashford (28) hefur verið boðið að taka þátt í heimildarþáttum Amazon um Manchester United. Það þykir gefa til kynna að hann verði áfram hjá félaginu. (Mirror)
Yan Diomande er með fullt af möguleikum

Yan Diomande er með fullt af möguleikum

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.