Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 20. október 2021 18:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Heiður fyrir mig að fá að vera með Sveindísi á vellinum"
Icelandair
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Sveindís Jane Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir eru leikmenn Kristianstad í Svíþjóð og samherjar í landsliðinu. Sif er á lokaári sínu hjá Kristianstad og Sveindís er þar á láni frá þýska félaginu Wolfsburg.

Sif svaraði spurningum fréttamanna í Teams-viðtali í dag. Hún var þar spurð út í þróun Sveindísar síðustu mánuði.

Hvernig finnst þér hún vera að þróast sem leikmaður?

„Hún er að taka alveg gríðarleg skref fram á við. Það er rosamikill munur að færa sig frá Íslandi og fara erlendis," sagði Sif.

„Sænska deildin er frekar taktísk og hún er að bæta sig mjög hratt þar. Það er búið að vera ógeðslega gaman að spila með henni og vera með henni fyrstu skrefin erlendis. Það er heiður fyrir mig að fá að vera með henni á vellinum og sjá hennar byrjun á vonandi glæsilegum ferli," sagði Sif um hina tvítugu Sveindísi Jane.

Athugasemdir
banner
banner
banner