20.10.26 - 23:38
Brynjar Ingi Erluson
Eyþór Orri sá fimmti sem Haukar krækja í (Staðfest)

Eyþór Orri og Árni Steinn eru komnir í Hauka

Mynd: Haukar

Haukar hafa fengið til sín sinn fimmta leikmann eftir að hafa tryggt sér sigur í 2. deildinni í haust, en Eyþór Orri Ómarsson er genginn til liðs við félagið frá Þrótti Vogum.
Eyþór Orri er 23 ára gamall en árið 2018 varð hann yngsti leikmaðurinn til að spila í efstu deild karla þegar hann kom inn á fyrir ÍBV gegn KR, þá aðeins 14 ára gamall.
Hann hefur leikið stærstan hluta ferilsins með ÍBV og venslafélagi þess, KFS, en gekk til liðs við Þrótt á síðasta ári.
Eyþór skoraði tvö mörk í 2. deildinni á síðustu leiktíð og bætti við tveimur mörkum í sumar.
Nú er hann genginn í raðir Hauka og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni á næsta ári. Hann er fimmti leikmaðurinn sem Haukar fá til sín fyrir komandi tímabil.
Árni Steinn Sigursteinsson kom frá Fjölni fyrr í dag og áður hafði Daníel Ingvar Ingvarsson einnig gengið til liðs við Hauka frá sama félagi. Þá komu Pere Belmonte og Federico Ignacio Russo Anzola báðir frá Kormáki/Hvöt.