Fotbolti.net
20.10.26 - 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Stefán Árni áfram hjá KR (Staðfest)

Stefán Árni áfram hjá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni Geirsson hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við KR en fyrri samningur hefði runnið út í næsta mánuði. Hann er nú samningsbundinn KR út tímabilið 2028.

„Það eru viðræður í gangi við hann, hann er á ákveðnum tímamótum og er að skoða sín mál. Ég held að bæði félagið og hann séu róleg yfir stöðu mál. Það er ekkert launungarmál að ef Stefán ætlar að spila á Íslandi þá viljum við hafa hann í KR, það er klárt og hann veit af því," sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, við Fótbolta.net um Stefán Árna fyrir um mánuði síðan.
Stefán Árni er fæddur árið 2000 og er uppalinn hjá KR. Hann lék á láni með Leikni tímabilið 2019 en fyrir utan það hefur allan sinn feril verið í Vesturbænum.

Hann er sóknarsinnaður miðjumaður sem lék á sínum tíma 14 leiki fyrir yngri landsliðin. Hann meiddist illa í aðdraganda tímabilsins 2025 og kom einungis við sögu í einum leik á tímabilinu. Á þessu tímabili hefur hann komið við sögu í átján deildarleikjum og skorað þrjú mörk.
Stefán Árni áfram hjá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni áfram hjá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni áfram hjá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Árni áfram hjá KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.