ESPN segir frá því í dag að Manchester United vilji fá Eden Dzeko, framherja Roma, í sínar raðir í janúar.
Anthony Martial og Marcus Rashford hafa verið að gera fína hluti að undanförnu auk þess sem hinn 18 ára gamli Mason Greenwood hefur sýnt fína takta þegar hann hefur fengið tækifæri.
Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, vill hins vegar bæta við reyndum markaskorara og Dzeko er nú efstur á óskalistanum.
Mario Mandzukic, framherji Juventus, hefur verið orðaður við United undanfarna mánuði en nú ku Dzeko vera kominn ofar á óskalista Solskjær.

Dzeko er 33 ára gamall en hann skoraði á sínum tíma 50 mörk í 130 leikjum með nágrönnum United í Manchester City.
Athugasemdir