20.11.26 - 16:30
Kári Snorrason
„Ef það er einhver sem nær mér upp þá er það hann“
Auglýsing

Skrifar undir þriggja ára samning við Hlíðarendafélagið.

Mynd: Valur

Geggjaður tími upp á Skaga.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Gísli, bróðir Ómars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilaði 61 leiki fyrir ÍA og skoraði tíu mörk.

Ómar Björn Stefánsson var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður Vals. Hann gengur til liðs við Hlíðarendafélagið frá ÍA þar sem hann hefur spilað undanfarin tvö tímabil en Ómar er að upplagi Fylkismaður.
Fótbolti.net ræddi við þennan 22 ára sóknarmann fyrr í dag og spurði hann út í vistaskiptin.

TENGT EFNI
Ómar Björn í Val (Staðfest)
Spennandi verkefni á Hlíðarenda
„Ingimar (Elí Hlynsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri ÍA) hringdi bara í mig þegar ég var í útlöndum núna í fríi og sagði að þeir hefðu samþykkt tilboðið frá Val og að þetta væri bara í mínum höndum núna. Þá heyrði ég bara í Dóra og hann útskýrði þetta vel fyrir mér og hvað planið væri. Mér leist bara mjög vel á það og bara spennandi verkefni framundan,“ segir Ómar aðspurður um hvernig skiptin kæmu til.
Geggjaður tími á Skipaskaga
Hvernig horfiru til baka á tímann með ÍA?
„Þetta var geggjaður tími, ég elska Skagann ennþá. Þetta er geggjaður klefi, umgjörðin þarna og aðstaðan. Það er bara allt geðveikt miðað við Ísland. Ingimar, Eggert formaður og Reynir Le, þetta eru allt geggjaðir gæjar sem að hafa hjálpað mér mjög mikið. Bara allir þarna í kring leggja allt í þetta,“ segir Ómar.
Fjölskyldutengingar í Val
Hjá Val mun Ómar vera liðsfélagi yngri bróður síns, Stefáns Gísla Stefánssonar en Stefán lék á láni með Njarðvík í sumar.
„Já, það verður geggjað sko. Spiluðum eitthvað saman í Fylki og nú erum við komnir saman aftur. Nú er ég Val. Ef það er einhver sem nær mér upp á æfingu þá er það hann. Það verður alveg barátta þar,“ segir Ómar.
Þá spilaði pabbi Ómars, Stefán Metúsalem Ómarsson, jafnframt með Val á árunum 1996-1999. „Hann elskar Val og honum fannst þetta spennandi. Nú er hann kominn með bæði mig og bróður minn í Val og hann er mjög ánægður með þetta,“ segir Ómar aðspurður um pabba sinn.
Afinn skúbbaði fréttunum
Afi Ómars birti færslu á samfélagsmiðlum og tilkynnti að Ómar væri mættur í Val áður en hann félagið tilkynnti hann sem nýjan leikmann liðsins. Ómar segir afa sinn hafa verið fljótan að taka færsluna út.
„Hann var mjög spenntur fyrir þessu og stendur alltaf með mér. Ég held að pabbi hafi nú talað við hann, sent honum einhverja mynd og hann var fljótur að taka það út,“ segir Ómar léttur að lokum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.