20.11.26 - 14:53
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
„Nákvæmlega það sem Breiðablik þurfti á að halda“

Stefan Ljubicic er kominn í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefan Ljubicic er kominn í Breiðablik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik hefur krækt í einn stærsta bitann á markaðnum en félagið tilkynnti í dag að sóknarmaðurinn Stefan Ljubicic hefði skrifað undir samning við félagið.
„Það var nokkuð ljóst að stóru liðin voru byrjuð að pæla í honum og hann endar í Breiðabliki," segir Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
Tómas er stuðningsmaður Víkings og segist örlítið afbrýðisamur út í Blikana.

TENGT EFNI
Stefan Ljubicic í Breiðablik (Staðfest)
„Hann skorar reglulega í sumar og svo bara fyrir utan það; bara það sem hann gerir á vellinum. Stór, stæðilegur, svona link-up, post-up leikmaður. Getur gert mikið og margt fyrir þetta Breiðablikslið og er nákvæmlega það sem Breiðablik þurfti á að halda því að hann er margfalt betri heldur en framherjarnir sem eru fyrir þarna. Hann hefur sannað sig sem markaskorari og gefur liðinu líka meira bit því að þetta er bolabítur á velli," segir Tómas.
„Þetta er allt annar leikmaður heldur en gekk í raðir KR fyrir einhverjum árum síðan. Hann er búinn að þroskast mikið síðan þá og bara sem leikmaður og manneskja," segir Elvar Geir.