20.11.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
England fær sekt vegna níðsöngva í Madríd

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
UEFA hefur sektað enska fótboltasambandið um 15 þúsund evrur vegna söngva stuðningsmanna Englands í Madríd í landsleikjahlénu.

TENGT EFNI
Tuchel ósáttur með spænsku fréttamennina
England vann frábæran sigur á ríkjandi heims- og Evrópumeisturum Spánar en ensku stuðningsmennirnir sungu níðsöngva sem beindust að kaþólsku kirkjunni, sem er sterk á Spáni, og Írum.
Auk sektarinnar fá stuðningsmenn Englands skilorðsbundið bann. Ef þeir gerast sekir um svipaða háttsemi á næstu tveimur árum mega þeir búast við banni.
Fyrir leik var rætt um mögulega kynþáttafordóma stuðningsmanna Spánverja, en leikurinn gekk snurðulaust fyrir sig að undanskildum níðsöngvum Englendinga.