Fotbolti.net
20.11.26 - 14:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kemur aftur til Íslands eftir brottrekstur í Svíþjóð - „Kom mér í opna skjöldu"

Nik lyftir hér Íslandsmeistaraskildinum.

Nik lyftir hér Íslandsmeistaraskildinum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Nik Chamberlain, fyrrum þjálfari kvennaliða Breiðabliks og Þróttar, var nýverið látinn taka pokann sinn hjá sænska félaginu Kristianstad. Ákvörðunin kom honum í opna skjöldu.

Nik tók við Kristianstad undir lok árs í fyrra og stýrði liðinu í sænsku úrvalsdeildinni. Liðið endaði í fimmta sæti deildarinnar, sem hann telur vera góðan árangur í ljósi aðstæðna hjá félaginu.
Í samtali við Fótbolta.net ræddi Chamberlain um brottreksturinn, samskiptin við stjórn félagsins, lærdóminn sem hann tekur með sér og framtíðina í þjálfun.

Kom mikið á óvart
„Þetta kom mér algjörlega í opna skjöldu,“ segir Nik þegar hann er spurður út í brottreksturinn.

Hann segir að fyrri hluti tímabilsins hafi verið sveiflukenndur. Liðið komst í undanúrslit bikarkeppninnar en átti jafnframt erfitt uppdráttar á köflum og vann ekki í sex leikjum í röð.

„Ef sú frammistaða hefði haldið áfram út tímabilið hefði ég líklega skilið ákvörðunina. Þá hefði ég getað sætt mig við að hlutirnir væru ekki að ganga upp og að það sem ég var að reyna að innleiða væri ekki að skila sér.“

Eftir sumarfríið hafi hins vegar orðið mikil breyting á liðinu. Hann segir að hann hafi náð meiri stöðugleika í þjálfun sinni og liðið farið að fylgja hugmyndafræðinni betur.

„Eftir fríið tókum við okkur saman í andlitinu og héldum okkur mun betur við okkar hugmyndafræði. Ég varð samkvæmari sjálfum mér í þjálfuninni og bæði úrslitin og frammistaðan bötnuðu gríðarlega. Við vorum að spila mjög, mjög vel.“

Kristianstad endaði í fimmta sæti deildarinnar og telur Nik að það hafi verið góður árangur miðað við aðstæður.

„Það fannst mér mikill árangur fyrir félag eins og Kristianstad, sérstaklega þegar litið er til þeirra leikmanna sem við misstum og þess að við vorum ekki með mestu fjármunina í deildinni. Við vorum einfaldlega að standa okkur mjög vel.“

Aldrei neinn formlegur fundur
Eins og áður segir þá kom brottreksturinn Nik á óvart. Hann segir að engin formleg samtöl hafi átt sér stað þar sem honum var gerð grein fyrir því að eitthvað væri athugavert við hans störf.

„Ég átti fund í febrúar með því sem kallað var íþróttaráð félagsins. Þar ræddum við mögulega leikmenn og ýmislegt sem við vildum innleiða. Það var í raun eini formlegi fundurinn sem ég átti með íþróttaráðinu.“

Síðar hafi hann átt almennari samtöl við aðila innan félagsins um framtíðina, leikmannamál og markmið, en það var aldrei haldinn formlegur fundur um starf hans áður en hann var rekinn.

„Það var aldrei haldinn formlegur fundur þar sem farið var yfir einhver vandamál tengd þjálfunarstílnum mínum eða hvort stór hópur leikmanna væri óánægður. Engir slíkir fundir áttu sér stað. Það verða alltaf einhverjir leikmenn óánægðir, til dæmis þeir sem fá ekki að spila eða ef ég hef verið svolítið harður við þá. Það er hins vegar eitthvað sem maður tekst á við frá degi til dags. Á sama tíma var frammistaða liðsins og úrslitin að batna.“

Nik viðurkennir að þjálfunarstíll hans sé ákafur og að það hafi mögulega tekið tíma fyrir leikmennina að venjast honum.

„Þjálfunarstíllinn minn er nokkuð ákafur og það vita allir. Ég held að þetta hafi verið ákveðin breyting til að byrja með, bæði fyrir leikmennina og mig sjálfan, þar sem ég þurfti að aðlagast nýju umhverfi.“

Hann segir að sumarfríið hafi komið á góðum tíma og að hann hafi sjálfur breytt nálgun sinni aðeins eftir það.

„Þegar við komum aftur eftir fríið fann ég greinilega breytingu á sjálfum mér. Ég gerði enn miklar kröfur en hafði líklega dregið aðeins úr ákefðinni miðað við það sem áður var.“

„Eftir að við komum aftur úr fríinu spiluðum við 12 eða 13 leiki og hlutirnir voru að batna. Mér fannst leikmannahópurinn og starfsliðið vera að aðlagast hvort öðru mjög vel.“

Vildi fá tækifæri til að halda áfram
Brottreksturinn hafði skiljanlega mikil áhrif á Nik, sérstaklega þar sem hann taldi verkefnið vera á réttri leið.

„Fyrstu dagarnir snerust að miklu leyti um áfallið og að efast um sjálfan mig. Ég spurði mig hvað ég hefði gert rangt og hvort ég hefði getað gert eitthvað betur. Það komu upp alls konar spurningar vegna þess hversu óvænt ákvörðunin var.“

Hann segist þó geta tekið margt jákvætt úr tímabilinu og sé sannfærður um að liðið hefði getað haldið áfram að þróast.

„Þegar ég lít til baka á tímabilið núna finnst mér við hafa staðið okkur vel. Ég er sannfærður um að við hefðum getað haldið áfram á sömu braut á næsta tímabili.“

Hann telur einnig að reynslan hafi kennt sér ýmislegt.

„Eitt af því er að átta sig fyrr á menningunni og umhverfinu sem maður er að koma inn í. Ég myndi líklega reyna að tala við fleiri einstaklinga og fá betri tilfinningu fyrir því hvers konar umhverfi ég væri að fara inn í.“

Hann leggur þó áherslu á að hann vilji ekki breyta sínum grunnþjálfunarhugmyndum.

„Ég vil ekki missa mín sérkenni sem þjálfari. Þjálfunarstíllinn minn hefur skilað mjög góðum árangri og það sýna úrslitin.“

Ísland er heima
Framundan hjá Nik er að komast að því hvernig mál hans varðandi íslenskan ríkisborgararétt standa. Hann hefur verið í ferli við að fá ríkisborgararétt og segir það hafa áhrif á næstu skref. Næst á planinu er að ferðast og svo að koma aftur til Íslands.

„Kærastan mín er íslensk og Ísland er mitt heimili. Það hefur verið það síðustu níu eða tíu árin. Áður en ég flutti hingað leit ég á Ísland sem mitt heimili.“

Nik, sem er upprunalega frá Englandi, kom til Íslands fyrst sem leikmaður árið 2007 og var hér á landi stóran hluta af 15 árum, í það minnsta á sumrin. Hann spilaði fyrir Álftanes, ÍH, Huginn, Dalvík/Reyni, Fjarðabyggð, Aftureldingu, Þrótt og SR áður en hann hóf að þjálfa hjá Þrótti árið 2016. Hann gerði svo Breiðablik að Íslandsmeisturum tvö ár í röð.

Hann þarf nú að kanna hvort dvöl hans í Svíþjóð hafi áhrif á ferlið og hvort hann geti nýtt sér undanþáguákvæði fyrir fólk sem fer tímabundið til starfa á Norðurlöndunum.

„Ef mér verður sagt að ég þurfi að byrja sjö ára ferlið upp á nýtt gæti það haft áhrif á hvað ég ákveð að gera næst. Þá þyrfti ég að velta því fyrir mér hvort ég vilji vera á Íslandi í sjö ár til viðbótar eða hvort ég vilji skoða önnur tækifæri.“

Nik segir að einhver áhugi hafi verið frá öðrum löndum og að umboðsmenn hafi einnig haft samband.

Hann er þó opinn fyrir því að snúa aftur til Íslands.

„Ég lít á Ísland sem heimili mitt."

Vill komast aftur í þjálfun sem fyrst
Nik segist ekki vera útbrunninn eftir reynsluna í Svíþjóð og vilji komast aftur í þjálfun sem fyrst.

„Ég er alls ekki útbrunninn og var tilbúinn að halda áfram. Mér finnst því ekki þurfa að taka mér frí til að endurmeta hlutina.“

Hann er opinn fyrir því að taka við nýju verkefni í byrjun næsta árs og útilokar ekki að það verði á Íslandi.

„Ef tækifæri gefst til að byrja einhvers staðar í byrjun nýs árs mun ég skoða það. Það gæti mögulega verið á Íslandi.“

Hann hefur enn metnað til að þjálfa erlendis og segir reynsluna hjá Kristianstad hafa verið mikilvæga fyrir sinn feril. Hann segist einnig tilbúinn að prófa eitthvað nýtt, til dæmis að taka að sér hlutverk aðstoðarþjálfara.

„Það gæti verið tækifæri til að koma aftur til Íslands og taka að mér hlutverk aðstoðarþjálfara hjá einhverju félagi. Það gæti verið áhugavert að kynnast öðru hlutverki," segir Nik.

Hann segir engar viðræður hafa átt sér stað við íslensk félög enn sem komið er en útilokar ekki að eitthvað gerist á næstu vikum.

„Það eru ekki mörg tækifæri í boði eins og er, þannig að við verðum bara að bíða og sjá hvað gerist," sagði þessi öflugi þjálfari að lokum.
Nik stýrði Kristianstad í tæpt ár.

Nik stýrði Kristianstad í tæpt ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Er á leið aftur til Íslands.

Er á leið aftur til Íslands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nik þjálfaði áður Þrótt og Breiðablik.

Nik þjálfaði áður Þrótt og Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Þjálfunarstíllinn minn er nokkuð ákafur og það vita allir.

,,Þjálfunarstíllinn minn er nokkuð ákafur og það vita allir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nik á hliðarlínunni.

Nik á hliðarlínunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Var þjálfari Kristianstad í um eitt ár.

Var þjálfari Kristianstad í um eitt ár.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Það komu upp alls konar spurningar vegna þess hversu óvænt ákvörðunin var.

,,Það komu upp alls konar spurningar vegna þess hversu óvænt ákvörðunin var.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ætlar flytja aftur heim.

Ætlar flytja aftur heim.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nik vann tvo Íslandsmeistaratitla með Blikum.

Nik vann tvo Íslandsmeistaratitla með Blikum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Starfaði áður hjá Þrótti við góðan orðstír.

Starfaði áður hjá Þrótti við góðan orðstír.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist næst hjá Nik.

Það verður fróðlegt að sjá hvað gerist næst hjá Nik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Ég er alls ekki útbrunninn og var tilbúinn að halda áfram.

,,Ég er alls ekki útbrunninn og var tilbúinn að halda áfram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

,,Það gæti verið áhugavert að kynnast öðru hlutverki.

,,Það gæti verið áhugavert að kynnast öðru hlutverki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað næst?

Hvað næst?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.