Fotbolti.net
20.11.26 - 11:16
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Víkingur að kaupa Óla Neuer - Lánaður til baka

Víkingur að kaupa Óla Neuer - Lánaður til baka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í Þungavigtinni í dag var greint frá því að Víkingur væri að klára kaup á Ólafi Erni Ásgeirssyni markmanni HK. Íslandsmeistararnir eru að kaupa hann en hann verður lánaður til baka í HK.

„Víkingarnir grínast ekkert, þeir eru búnir að kaupa markmann. Þeir fóru upp í Kór í stóru seðlana og keyptu Ólaf Örn Ásgeirsson, Óla Neuer eins og hann er kallaður. Það góða við þetta er að Víkingur kaupir hann á metfé en lánar hann aftur í Kórinn, hann tekur eitt tímabil enn í Kórnum," segir Kristján Óli Sigurðsson í þætti dagsins.

Fótbolti.net hefur sömu heimildir, en þó ekki upplýsingar um kaupverðið og meint metfé.

Ólafur þykir efnilegur markvörður, hann er fæddur árið 2003 og hefur fengið viðurnefnið Óli Neuer þar sem hann þykir svipa til Þjóðverjans Manuel Neuer sem var um árabil einn allra besti markvörður heims.
Víkingar með Óla Neuer í sigtinu
TENGT EFNI

Víkingar með Óla Neuer í sigtinu

Fótbolti.net sagði frá því fyrr í vetur að Víkingur hefði áhuga á Ólafi Erni og hafa félögin verið í viðræðum síðustu vikur.

Ólafur hefur verið aðalmarkvörður HK síðustu tvö ár en þar á undan spilaði hann á láni með Völsungi og var einnig á láni hjá ÍR og Þrótti Vogum. Hann á að baki einn leik fyrir U19 landsliðið.

Aron Snær Friðriksson er aðalmarkvörður Víkings, hann steig inn eftir að Ingvar Jónsson greindist með alvarleg veikindi. Ögmundur Kristinsson barðist við Aron um sætið í markinu á tímabilinu en Ögmundur er með lausan samning. Uggi Jóhann Auðunsson stóð þá vaktina á milli stanganna í lokaumferð Bestu deildarinnar.
Víkingur að kaupa Óla Neuer - Lánaður til baka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.