Fotbolti.net
20.11.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Harpa sú fyrsta sem skrifar undir hjá nýstofnuðu liði KA (Staðfest)

Mætt heim í KA.

Mætt heim í KA.

Canon

Mynd: KA

Kvennaboltinn
Í dag greinir KA frá því að Harpa Jóhannsdóttir hafi skrifað undir tveggja ára samning við KA og er hún með því fyrsti leikmaðurinn til að skrifa undir hjá nýstofnuðu kvennaliði KA.

Eins og greint hefur verið frá í vetur ákvað KA að slíta samstarfi við Þór í kvennaboltanum en félögin höfðu unnið saman í fjölda ára. KA vildi fjölga tækifærum hjá fótboltakonum á Akureyri til að spila með liði í bænum. KA mun spila í 2. deild á komandi tímabili.

Harpa er 28 ára og er uppalinn hjá KA. Hún hefur alla tíð leikið fyrir norðan ef frá er talinn tími hennar í Seton Hall Pirates skólanum í New Jersey. Harpa lék á sínum tíma átta leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Úr frétt á heimasíðu KA
Það er heldur betur við hæfi að Harpa sé fyrsti leikmaðurinn til að skrifa undir hjá okkar nýja liði en Harpa sem er uppalin hjá KA er gríðarlega öflugur félagsmaður en auk þess að hafa spilað með liði Þór/KA hefur hún verið ákaflega öflug í þjálfun yngriflokka KA frá unga aldri. Harpa er einnig mikill leiðtogi sem mun án nokkurs vafa drífa lið okkar áfram.

Undanfarin ár hafa tækifæri Hörpu hjá Þór/KA verið af skornum skammti og verður virkilega gaman að sjá til hennar á vellinum í gula og bláa búningnum.

Hið nýstofnaða lið KA leikur í 2. deild á komandi sumri og erum við ákaflega spennt fyrir því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt umhverfi fyrir okkar stelpur. Koma Hörpu heim í KA er lykilskref í þeirri vegferð og erum við afar ánægð að hún sé sú fyrsta til að skrifa undir hjá liðinu. Stelpurnar hafa nú þegar verið að æfa undanfarnar vikur og eru frekari fréttir af leikmannamálum framundan næstu daga.


Heimild: KA

Harpa varði mark Þórs/KA í meirihluta leikjanna 2020-22, lék helming leikjanna 2024 en hefur verið varamarkvörður síðustu tvö tímabil.

Harpa varði mark Þórs/KA í meirihluta leikjanna 2020-22, lék helming leikjanna 2024 en hefur verið varamarkvörður síðustu tvö tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.