20.11.26 - 13:19
Elvar Geir Magnússon
„Við höfum Eckert“ - Stjóri Southampton hefur framlengt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tonda Eckert, stjóri Southampton, hefur skrifað undir nýjan samning til ársins 2029.
Eckert, sem er 33 ára Þjóðverji, var miðpunkturinn í umtöluðu njósnamáli á síðasta tímabili. Óttast var að Þjóðverjinn fengi langt bann frá hliðarlínunni en hann slapp með skrekkinn og fékk sex vikna skilorðsbundið bann sem gildir út tímabilið.

„Það hefur margt gerst síðustu tólf mánuði en stuðningurinn sem ég hef fengið er ómetanlegur," segir Eckert.
Eftir að upp komst um njósnir Southampton á æfingum þriggja keppinauta sinna var liðinu sparkað út úr umspili Championship-deildarinnar á síðasta tímabili og missti því af möguleika á úrvalsdeildarsæti og öllu sem því fylgir. Að auki voru fjögur stig dregin af Southampton fyrir þetta tímabil.
Southampton sendi njósnara til að fylgjast með æfingum andstæðinga og varð mikið fjölmiðlafár þegar hann var nappaður að fela sig bak við tré á æfingasvæði Middlesbrough.
Ef ekki hefði verið fyrir þá refsingu hefðu þeir verið í fjórða sæti deildarinnar núna og einu stigi á eftir toppliðinu. Dýrlingarnir eru í sjöund sæti.

We’ve got ECKERT ??
— Southampton FC (@SouthamptonFC) November 20, 2026
We are delighted to confirm that Tonda Eckert has agreed a contract extension ?? https://t.co/p2w1WJlMA7
Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |