20.11.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Leno orðaður við Bayern - „Heildarpakkinn þarf að vera réttur"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bernd Leno, aðalmarkvörður Fulham, hefur verið orðaður við þýska risa liðið Bayern München. Slúðrið var á þá leið að Leno væri ásamt Loris Karius mögulegur kostur sem varmarkvörður fyrir Jonas Urbig.
Líkur eru á því að Manuel Neuer, aðalmarkvörður Bayern, leggi hanskana á hilluna eftir þetta tímabil. Urbig er 23 ára og kom til Bayern frá Köln í janúar 2025.

Leno var spurður út í sína framtíð.
„Kannski er líka dýrmæt reynsla að stíga aðeins til hliðar eða gera eitthvað annað. Stundum líður mér samt líka eins og það væri synd að taka skrefið í að vera með annan fyrir framan sig, því ég hef enn það sem til þarf."
„Þegar allt kemur til alls þarf heildarpakkinn að vera réttur," segir Leno.
Hann er 34 ára Þjóðverji sem kom til Fulham frá Arsenal sumarið 2022 og er því á sínu fimmta tímabili sem aðalmarkvörður Fulham. Hann verður samningslaus næsta sumar.