20.11.26 - 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Breytingar í kortunum hjá Þór

Eiður Ben og Siggi Höskulds.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alli Jói.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Ben og Siggi Höskulds.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í næstu viku munu Þórsarar opinbera þjálfarateymi sín fyrir komandi tímabil í Bestu deildunum.
Sigurður Heiðar Höskuldsson er áfram þjálfari karlaliðsins og Aðalsteinn Jóhann Friðriksson stýrir kvennaliðinu sem spilar undir merkjum Þórs á komandi tímabili eftir að KA sleit samstarfinu, en liðið hafði spilað undir merkjum Þórs/KA í mörg ár.

Eiður Benedikt Eiríksson var aðstoðarmaður Sigga með karlaliðið á liðnu tímabili. Eiður verður, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, framkvæmdastjóri fótboltadeildar Þórs sem er nýtt stöðugildi hjá félaginu. Eiður kom til Þórs eftir að hafa starfað hjá Breiðabliki árin á undan.
Í stað Eiðs mun Þór ráða inn nýjan aðstoðarþjálfara.
Jóhann Hreiðarsson, Jói Hreiðars, var annar af aðstoðarmönnum Alla Jóa með kvennaliðið á liðnu tímabili en hann er búinn að semja á Dalvík og mun þar aðstoða Hörð Snævar Jónsson með Dalvík/Reyni.
Það verður fróðlegt að sjá hver kemur inn í teymi kvennaliðsins fyrir Jóa.