Fotbolti.net
20.11.26 - 12:09
Elvar Geir Magnússon

Umspil Þjóðadeildarinnar: Heimir gegn Króatíu

Heimir með stuðningsmönnum Írlands.

Heimir með stuðningsmönnum Írlands.

Canon

Mynd: EPA

Búið er að draga í umspil Þjóðadeildarinnar sem fram fer í lok mars á næsta ári. Heimir Hallgrímsson og lærisveinar hans í írska landsliðinu voru í pottinum en þeir eru á leið í umspil um að komast upp í A-deild Þjóðadeildarinnar.

Írland mætir Króatíu en Heimir er vanur rimmum við Króata frá þjálfaratíð sinni með íslenska landsliðinu.
Vinir okkar í Færeyjum fara í umspil um að fylgja okkur Íslendingum upp í B-deildina og munu þar mæta Georgíu.

Umspil um að vera í B-deildinni:
Kýpur - Norður Macedonia
Eistland - Rúmenía
Færeyjar - Georgía
Belarús - Ísrael

Umspil um að vera í A-deildinni:
Bosnía og Hersegóvína - Danmörk
Ungverjaland - Serbía
Írland - Króatía
Slóvenía - Wales
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.