21.01.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Batistuta til Inter Milan (Staðfest)
Gabriel Omar Batistuta framherji Roma er genginn til liðs við Inter Milan á lánssamningi út tímabilið. Inter ákvað að leyta til Batistuta þegar ljóst varða ð Hernan Crespo verður frá í þrjá mánuði vegna meiðsla en á San Siro hittir Batistuta fyrir argentíska þjálfarann Hector Cuper auk fimm annara Argentínumanna sem leika með Inter. Samningur Batistuta hjá Roma átti að renna út í júní og í framhaldi af því stefnir kappinn á að snúa sér í ensku deildina. Hann mun ekki getað leikið með Inter í Meistaradeildinni þar sem hann hefur þegar leikið með Roma í þeirri deild.
