Fotbolti.net
21.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Bowyer fer ekki til Liverpool!!! (STAÐFEST)

Gerard Houllier stjóri Liverpool er hættur við að reyna að ljúka samningum við Lee Bowyer. Eftir viku samningaviðræðu við Bowyer er Houllier viss um að hann sé ekki rétti leikmaðurinn fyrir Liverpool. Liverpool kom með þessa yfirlýsingu í morgun: ,,Liverpool FC hefur ákveðið að ganga ekki frá fyrirhuguðum kaupum á Lee Bowyer vegna nokkurra ástæðna. Gerard Houllier stjóri liðsins gat ekki fullvissað sig um að leikmaðurinn hefði hungur eða þrá til að spila fyrir félgið, en það er nokkuð sem er ómissandi hjá Liverpool leikmönnum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.