21.07.04 - 00:27
Magnús Már Einarsson
Di Vaio til Valencia (Staðfest)

Di Vaio í baráttunni.


Di Vaio í baráttunni.

Spánarmeistarar Valencia hafa keypt sóknarmanninn Marco Di Vaio frá Juventus fyrir óuppgefna upphæð en spænska íþróttablaðið Marca segir verðið vera 10,5 milljónir evra eða sjö milljónir punda. Di Vaio sem að kom til Juventus frá Parma árið 2002 hefur nú skrifað undir fimm ára samning við Valencia. Svo virðist vera sem að Valenciamenn séu hræddir við að missa Miguel Mista markahæsta mann liðsins á síðustu leiktíð en kappinn á um eitt ár eftir af samningi sínum og þykja kaupin á Di Vaio gefa nokkrar vísbendingar um hversu hræddir þeir eru við að missa Mista. Valenciamenn hafa hótað því að setja hann á sölulista samþykki kappinn ekki nýjan samning á næstu dögum.
Hjá Valencia hittir Marco Di Vaio tvo landa sína frá Ítalíu, þá Stefano Fiore og Bernardo Corradi sem að komu til Lazio í sumar fyrir um ellefu milljónir punda. Þessir þrír leikmenn eru einu leikmennirnir sem að Claudio Ranieri hefur keypt hjá Valencia eftir að hafa tekið við stjórn liðsins í sumar en Ranieri sem að er Ítali hefur keypt þrjá ítalska leikmenn, tilviljun?
