21.07.04 - 09:59
Hafliði Breiðfjörð
Viana til Sporting Lisabon (Staðfest)




Portúgalinn Hugo Viana sem er á mála hjá Newcastle í Englandi hefur verið lánaður til Sporting Lisabon í heimalandinu út tímabilið. Viana sem er 21 árs gamall var óánægður á St. James Park en fyrr í sumar munaði minnstu að hann færi til Porto en ekkert varð af því. Hann var keyptur til Newcastle á 8,5 milljónir punda árið 2002.
