Fotbolti.net
21.07.26 - 15:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fatawu til nýliðanna í úrvalsdeildinni (Staðfest)

Fatawu til nýliðanna í úrvalsdeildinni (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Abdul Fatawu er genginn í raðir Ipswich en hann kemur til félagsins frá Leicester. Ipswich er sagt greiða 20 milljónir punda fyrir leikmanninn og sú upphæð getur hækkað um þrjár milljónir punda út frá árangurstengdum gjöldum.

Fatawu er landsliðsmaður Gana og skrifar undir fimm ára samning við Ipswich sem fór upp úr Championship deildinni í vetur. Hann spilaði í öllum fjórum leikjunum hjá Gana á HM.
Hann er 22 ára kantmaður sem á að baki Meistaradeildarleiki með Sporting og spilaði tímabilið 2024/25 í úrvalsdeildinni með Leicester.

Á liðnu tímabili skoraði hann níu mörk í 44 leikjum þegar Leicester féll úr ensku B-deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.