Fotbolti.net
21.07.26 - 21:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rogers til Chelsea fyrir metfé (Staðfest) - Skrifar undir sjö ára samning

Rogers til Chelsea fyrir metfé (Staðfest) - Skrifar undir sjö ára samning
Canon

Mynd: Chelsea

Morgan Rogers er genginn til liðs við Chelsea frá Aston Villa fyrir 117 milljónir punda.

Rogers skrifar undir sjö ára samning og er dýrasti breski leikmaðurinn í sögunni. Hann bætti met Elliot Anderson sem gekk til liðs við Man City fyrir 116 milljónir punda fyrr í sumar.
„Ég er svo spenntur. Fyrir mér er Chelsea stærsta félagið í Lundúnum og ég hef dáðst að félaginu síðan ég var krakki," sagði Rogers.

„Ég er mjög spenntur fyrir verkefninu með nýjum stjóra, leikmönnunum sem við erum með og hvert félagið stefnir. Þess vegna er ég hér og get ekki beðið eftir því að byrja."

Rogers kom við sögu í sjö leikjum með enska landsliðinu á HM í sumar og lagði upp eitt mark.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.