Fotbolti.net
21.08.04 - 07:01

Carrick til Tottenham (Staðfest)

Carrick í baráttu um boltann

Carrick í baráttu um boltann

Canon
Búið er að ganga frá sölunni á Michael Carrick frá West ham til Tottenham Hotspur. Leikmaðurinn samdi til fjögurra ára og er talið að kaupverðið sé um 3.2 milljónir punda. Leikmaðurinn á reyndar eftir að fara í læknisskoðun en ekki er talið líklegt að vandamál muni koma þar upp.
Frank Arnesen yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham sagði um Carrick, sem leikið hefur yfir 150 leiki með West ham og spilað tvo landsleiki fyrir England: Michael er mjög hæfileikaríkur enskur leikmaður sem við erum mjög ánægðir með að hafa samið við, sérstaklega miðað við ungan aldur hans.

Hann hefur góða tækni, getur sent boltann og leikið kanta á milli. Með kaupunum á honum höfum við mjög sterka miðju. Mikil samkeppni ríkir um stöður sem er nokkuð sem allir topp klúbbar þurfa að hafa.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.