21.08.04 - 13:43
Diego Forlan til Villareal (Staðfest)

Forlan er hér til hægri

Forlan er hér til hægri

Villareal hafa gengið frá samningum Diego Forlan sóknarmann Manchester United. Hann skrifaði undir fimm ára samning við spænska liðið og bindur þar með endi á misheppnaðan feril á Englandi.
Forlan var kynntur í morgun sem leikmaður Villareal eftir að hafa flogið í gegnum læknisskoðun. Forlan sagði að allt hefði gengið mjög fljótt fyrir sig og að Sir Alex Ferguson hafi ákveðið að selja hann.
"Þetta gekk fljótt fyrir sig, allt gerðist mjög hratt. Sir Alex Ferguson talaði við mig og sagði að ég fengi ekkert of mörg tækifæri (hjá United) á þessu tímabili og mælti með því að ég samþykkti tilboðið."
Ekki hefur kaupverð fengist staðfest en 2 milljónir punda eruu taldar vera nálægt því. Það þýðir 5,5 milljón punda tap fyrir United sem keypti Forlan fyrir 7,5 milljónir punda frá Independiente. Þetta eykur líkurnar á því að Ferguson kaupi sér einn framherja áður en félagaskiptaglugginn lokar.