21.09.19 - 13:38
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Leeds tapaði stigum í uppbótartíma

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Leeds 1 - 1 Derby County
1-0 Max Lowe ('20, sjálfsmark)
1-1 Chris Martin ('92)
1-0 Max Lowe ('20, sjálfsmark)
1-1 Chris Martin ('92)
Leeds United hefur verið að banka á úrvalsdeildardyrnar í nokkur ár en ekki enn tekist að komast upp um deild þrátt fyrir að sýna mikla yfirburði á köflum í Championship deildinni.
Leeds leikur undir stjórn Marcelo Bielsa og hefur farið vel af stað á tímabilinu. Liðið er á toppi deildarinnar með 17 stig eftir 8 umferðir, en í dag missti liðið niður forystu gegn Derby á sorglegan hátt.
Heimamenn í Leeds komust yfir í fyrri hálfleik og stjórnuðu leiknum frá fyrstu til síðustu mínútu. Mateusz Klich klúðraði vítaspyrnu fyrir Leeds í síðari hálfleik en í þann mund sem þeir voru að landa sigrinum potaði Chris Martin inn jöfnunarmarki fyrir Derby.
Martin skoraði í uppbótartíma og var þetta eina skot gestanna sem hæfði markrammann.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Middlesbrough | 13 | +13 | 28 |
| 2 | Swansea | 13 | +7 | 26 |
| 3 | Wolves | 13 | +7 | 24 |
| 4 | West Brom | 13 | +5 | 24 |
| 5 | Southampton | 13 | +15 | 23 |
| 6 | Birmingham | 13 | +10 | 23 |
| 7 | Stoke City | 13 | +4 | 23 |
| 8 | West Ham | 13 | +15 | 22 |
| 9 | QPR | 13 | +5 | 20 |
| 10 | Sheffield Utd | 13 | +2 | 19 |
| 11 | Portsmouth | 13 | +1 | 19 |
| 12 | Millwall | 13 | +2 | 18 |
| 13 | Blackburn | 13 | -1 | 18 |
| 14 | Bristol City | 13 | -2 | 18 |
| 15 | Norwich | 13 | -1 | 15 |
| 16 | Lincoln City | 13 | -9 | 15 |
| 17 | Cardiff City | 13 | -1 | 14 |
| 18 | Wrexham | 13 | -4 | 14 |
| 19 | Bolton | 13 | -8 | 14 |
| 20 | Charlton Athletic | 13 | -10 | 14 |
| 21 | Watford | 13 | -11 | 11 |
| 22 | Burnley | 13 | -8 | 9 |
| 23 | Derby County | 13 | -14 | 7 |
| 24 | Preston NE | 13 | -17 | 5 |