Elías Rafn Ólafsson átti virkilega góðan leik þegar Midtjylland lagði FC Kaupmannahöfn að velli á útivelli á sunnudag. Elías hélt marki Midtjylland hreinu í leiknum og fékk hann mikið lof fyrir frammistöðu sína.
Elías er í liði umferðinnar hjá Tipsbladet og hjá Offside á TV3 Sport. Í umsögn um Elías í Tipsbladet segir m.a.:
„Uppseldur Parken náði ekki að taka Elías úr jafnvægi og hann gerði engin mistök í sigri Midtjylland í höfuðborginni. Geturt Jonas Lössl verið viss um að fá sitt pláss í liðinu til baka?"
Mikael Neville Anderson, leikmaður AGF, er í liði vikunnar hjá TV3 Sport og í liði vikunnar sem danska deildin birtir á Twitter-reikningi sínum. Mikael skoraði sitt annað mark í sínum öðrum leik eftir endurkomu til AGF en hann var seldur frá Midtjylland fyrir gluggalok. Mikael hefði verið á mála hjá AGF þegar hann var yngri.
Mikael skoraði seinna mark AGF í 0-2 útisigri gegn Silkeborg í gær.
Athugasemdir