21.09.26 - 16:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
FH fær unglingalandsliðskonu frá Selfossi (Staðfest)

Mynd: FH

Mynd: FH

Sara Rún Auðunsdóttir er komin í FH sem fær hana frá uppeldisfélaginu Selfossi. Hún gengur formlega til liðs við FH 16. nóvember.
Sara Rún er 15 ára unglingalandsliðskona sem skrifar undir þriggja ára samning í Kaplakrika.

„Sara Rún er 15 ára gömul örvfættur sóknarmaður sem hefur, þrátt fyrir ungan aldur, nú þegar spilað yfir 20 leiki fyrir meistaraflokk Selfoss í deildarkeppni. Velkomin í Kaplakrika Sara Rún!" segir í tilkynningu FH.
„Hin unga og efnilega Sara Rún Auðunsdóttir hefur samið við FH en hún hefur leikið með Selfossi alla sína tíð. Sara er fædd árið 2011 en þrátt fyrir ungan aldur lék hún sína fyrstu meistaraflokksleiki sumarið 2025. Hún glímdi við meiðsli stærstan hluta nýafstaðins tímabils en lék engu að síður sex leiki í Lengjudeildinni ásamt því að spila með 2. og 3. flokki félagsins. Sara á að baki nokkra landsleiki fyrir U17 ára landslið Íslands en hún skoraði sitt fyrsta landsliðsmark á dögunum úti í Portúgal gegn Wales á æfingamóti. Knattspyrnudeild Selfoss óskar Söru góðs gengis í Hafnarfirði!" segir í tilkynningu Selfoss.