Mainoo opinn fyrir Napoli - Tekur Gerrard við Boro? - Forest vill 120 milljónir punda - Kröfur Vinicius gætu ýtt honum í burtu
   mán 21. október 2019 22:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Emery: Alltaf peysutog og víti - Áttum meira skilið en við fengum
Sheffield United lagði Arsenal að velli, 1-0, á heimavelli sínum Brammal Lane í kvöld. Lys Mousset gerði eina mark leiksins og kom það eftir hálftíma leik.

Unai Emery, stjóri Arsenal, var svekktur á blaðamannafundi eftir leik.

„Við vissum alltaf að þetta yrði erfiður leikur. Þetta lið hefur fengið á sig færri mörk en Liverpool í deildinni. Við áttum ekki skilið að tapa. Við unnum vel og leikmenn reyndu sitt besta. Mér fannst við eiga meira skilið," sagði Emery eftir leik.

Emery var spurður um Nicolas Pepe en hann hefur farið hægt af stað hjá Lundúnafélaginu. Pepe klúðraði dauðafæri á 20. mínútu leiksins.

„Smám saman er hann að verða betri hjá kkur. Hann fékk nokkur færi og er að færast nær sínu besta. Mér finnst sjálfstraustið hans vera að aukast."

Þá var Emery spurður út í þegar John Egan togaði í treyju Sokratis inn í vítateig Sheffield.

„Við áttum alltaf að fá víti þarna. Það er brotið á Sokratis. Ég skil ekki af hverju VAR er ekki notað í svona stöðu. Við verðum að hjálpa dómurunum,"

Emery var að lokum spurður út í stöðu Arsenal í deildinni og leikinn í heild sinni.

„Við erum í þéttum pakka í töflunni og við vitum að við misstum af góðu tækifæri í kvöld. Á öðrum degi hefði þessi frammistaða skilað okkur þremur punktum í kvöld.".
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 11 8 2 1 20 5 +15 26
2 Man City 11 7 1 3 23 8 +15 22
3 Chelsea 11 6 2 3 21 11 +10 20
4 Sunderland 11 5 4 2 14 10 +4 19
5 Tottenham 11 5 3 3 19 10 +9 18
6 Aston Villa 11 5 3 3 13 10 +3 18
7 Man Utd 11 5 3 3 19 18 +1 18
8 Liverpool 11 6 0 5 18 17 +1 18
9 Bournemouth 11 5 3 3 17 18 -1 18
10 Crystal Palace 11 4 5 2 14 9 +5 17
11 Brighton 11 4 4 3 17 15 +2 16
12 Brentford 11 5 1 5 17 17 0 16
13 Everton 11 4 3 4 12 13 -1 15
14 Newcastle 11 3 3 5 11 14 -3 12
15 Fulham 11 3 2 6 12 16 -4 11
16 Leeds 11 3 2 6 10 20 -10 11
17 Burnley 11 3 1 7 14 22 -8 10
18 West Ham 11 3 1 7 13 23 -10 10
19 Nott. Forest 11 2 3 6 10 20 -10 9
20 Wolves 11 0 2 9 7 25 -18 2
Athugasemdir
banner