Fotbolti.net
28.11.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson

Með þrettán stiga forystu á toppnum

Með þrettán stiga forystu á toppnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í Herthu Berlín eru komnir með þrettán stiga forskot á toppi þýsku B-deildarinnar eftir sannfærandi 4-0 sigur á Karlsruher í dag.
Íslenski landsliðsmaðurinn átti mjög góðan leik með Herthu áður en honum var skipt af velli á 67. mínútu.

Hann fékk nokkur góð færi sjálfur og skapaði einnig hættu fyrir samherja sína í þessum örugga sigri.

Hertha hefur nú unnið tólf af þrettán deildarleikjum sínum og er með 37 stig á toppnum, þrettán stigum meira en liðið í öðru sæti.

Jakob Gunnar Sigurðsson kom þá inn af bekknum hjá Hilleröd sem gerði 1-1 jafntefli við Vendsyssel í dönsku B-deildinni.

Hilleröd situr í tíunda sæti deildarinnar með 16 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.