Fotbolti.net
21.10.26 - 15:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hvað gerir Stjarnan í leikmannamálum? - Miklar breytingar í kortunum

Hvað gerir Stjarnan í leikmannamálum? - Miklar breytingar í kortunum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er ljóst að það verður talsvert um breytingar hjá Stjörnunni í vetur. Rúnar Páll Sigmundsson er að taka við liðinu eftir algjört vonbrigðatímabil og miklar hræringar í þjálfaramálum.

Stjarnan endar í 8. eða 9. sæti Bestu deildarinnar eftir að hafa verið spáð 3. sætinu fyrir mót.
Leikmannahópur Stjörnunnar er á pappír ansi sterkur og er ljóst að flestir leikmenn hafa ekki staðið undir væntingum á tímabilinu. Það eru nokkrir leikmenn að renna út á samningi og menn hafa verið orðaðir í burtu.

Samkvæmt heimasíðu KSÍ eru 20 leikmenn á meistaraflokksaldri áfram samningsbundnir félaginu. Af þeim hafa nokkuð margir verið orðaðir í burtu: Jóhann Árni Gunnarsson og Örvar Eggertsson voru oraðir við Val í slúðurpakkanum, Benedikt Warén gæti haldið annað, Daníel Finns vildi fara í sumar, Haukur Brink lék með Aftureldingu seinni part sumars, Þorri Mar hefur verið í mjög takmörkuðu hlutverki og þeir Árni Vilhjálmsson og Ari Leifsson hafa ekki náð að vinna sér sæti í liðinu.

Fjórir leikmenn sem hafa spilað í sumar eru með lausa samninga í haust og er búist við því að þeir Andri Rúnar Bjarnason, Sindri Þór Ingimarsson og Árni Snær Ólafsson verði ekki áfram. Emil Atlason er orðaður við önnur félög í deildinni, en Stjarnan vill væntanlega reyna halda markaskoraranum.

Alls eru þetta tólf leikmenn sem eru nefndir hér að ofan og ljóst að tveir leikmenn verða ekki áfram.

Bakvörðurinn Damil Dankerlui verður ekki áfram og hefur þegar kvatt samherja sína og Guðmundur Kristjánsson hefur lagt skóna á hilluna.

Leikmenn á meistaraflokksaldri
Samningsbundnir áfram (21)
Guðmundur Baldvin Nökkvason (2004)
Birnir Snær Ingason (1996)
Jóhann Árni Gunnarsson (2001)
Örvar Eggertsson (1999)
Örvar Logi Örvarsson (2003)
Benedikt V. Warén (2001)
Daníel Finns Matthíasson (2000)
Bjarki Hauksson (2006)
Gustav Kjeldsen (1999)
Haukur Örn Brink (2005)
Alex Þór Hauksson (1999)
Ibrahim Turay (2000)
Þorri Mar Þórisson (1999)
Árni Vilhjálmsson (1994)
Ari Leifsson (1998)
Christian Bjarmi Alexandersson (2007)
Heiðar Ægisson (1995)
Darri Bergmann Gylfason (2001)
Sigurður Gunnar Jónsson (2004)
Jón Hrafn Barkarson (2003)
Aron Dagur Birnuson (1999)

Eru að renna út (4)
Árni Snær Ólafsson (1991)
Andri Rúnar Bjarnason (1990)
Emil Atlason (1993)
Sindri Þór Ingimarsson (1998)

Verða ekki áfram (2)
Guðmundur Kristjánsson (1989) - hættur
Damil Dankerlui (1996)

Þessir voru orðaðir við Stjörnuna í slúðurpakkanum
Viðar Ari Jónsson (HamKam), Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir), Halldór Snær Georgsson (KR), Hjörvar Daði Arnarsson (Grindavík), Arnór Ingi Kristinsson (ÍBV), Kristófer Konráðsson (Fram), Aron Lucas Vokes (ÍBV/Selfoss).
Fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson varð að leggja skóna á hilluna vegna hjartavandamála og er orðaður við stöðu styrktarþjálfara hjá félaginu.

Fyrirliðinn Guðmundur Kristjánsson varð að leggja skóna á hilluna vegna hjartavandamála og er orðaður við stöðu styrktarþjálfara hjá félaginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll er mættur aftur í Stjörnuna.

Rúnar Páll er mættur aftur í Stjörnuna.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Damil er farinn frá Stjörnunni.

Damil er farinn frá Stjörnunni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvað gerir Emil Atlason?

Hvað gerir Emil Atlason?

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Benedikt Warén var líklega besti leikmaður Stjörnunnar í sumar.

Benedikt Warén var líklega besti leikmaður Stjörnunnar í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.