Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 22. janúar 2020 22:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fótbolta.net mótið: Árborg lagði Elliða
Haukur Ingi í leik með Selfoss árið 2014.
Haukur Ingi í leik með Selfoss árið 2014.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Árborg 1 - 0 Elliði
1-0 Haukur Ingi Gunnarsson

Einn leikur fór í kvöld fram í C-deild Fótbolta.net mótsins þegar Árborg mætti Elliða í riðli 2 á JÁVERK-vellinum.

Liðin leika í riðli með Kórdrengjum og Augnablik og sigruðu Kórdrengir í fyrsta leik riðilsins um helgina.

Árborg sigraði í kvöld og fer því upp að hlið Kórdrengja á toppi riðils 2. Haukur Ingi Gunnarsson skoraði eina mark leiksins.

Næsta umferð fer fram þarnæstu helgi þegar Augnablik mætir Elliða og Kórdrengir mæta Árborg.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner